Bolludagurinn var haldinn hátíðlegur síðastliðinn mánudag og var öllum trompum spilað hér í bakaríinu til að fullnægja bolluþörf Húsvíkinga og annarra í nágrenninu. Á bolluvertíðinni voru bakaðar tæplega 10.000 bollur af ýmsum gerðum sem runnu greinilega vel ofaní lýðinn.
Þess má geta að Heimabakarí bauð öllum börnum leikskólans á Húsavík, Grænuvöllum, uppá bollu í tilefni dagsins og virðist það hafa vakið mikla lukku.
Myndavélin var höfð á lofti og eru nokkrar þeirra komnar í myndasafnið hér á síðunni.
Já mikið rétt, Heimabakarí er núna komið með sína eigin heimasíðu. Hér stendur til að sýna helstu vörur sem við bjóðum uppá í bakaríinu og koma með skemmtilegar fréttir úr starfi bakarísins. Vonum að þið njótið !